1386
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1386 (MCCCLXXXVI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Aðsúgur var gerður að Guðmundi Ormssyni og Ormi Snorrasyni á Alþingi vegna drápsins á Þórði Jónssyni góðamanni.
- Annálar segja frá því að menn Guðmundar Ormssonar hafi rænt og ruplað í Sunnlendinga- og Vestfirðingafjórðungi.
- Björn Þorbjarnarson lét af störfum sem lögmaður sunnan og austan.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 14. janúar - Stríð hófst milli Austurríkis og Sviss. Í kjölfarið hófu kantónur Sviss enn frekari sameiningu.
- 13. febrúar - Lýðveldið Feneyjar tók yfir eyjuna Korfú.
- 15. febrúar - Elísabet af Bosníu, lét ráða af dögum Karl 3. af Napólí.
- 9. júlí - John af Gaunt fór frá Englandi með 5.000 menn til að fylgja eftir tilkalli sínu til kórónu Kastilíu vegna seinni konu sinnar, Konstönsu af Kastilíu.
- 17. ágúst - Karl Thopia, prins Albaníu, fór í bandalag við Lýðveldið Feneyjar. Albanía verndaði feneyska kaupmenn í landinu og Feneyjar vernduðu Albani gegn Ottómönum.
- 18. október - Heidelberg-háskóli var stofnaður.
- 21. nóvember - Tímúr réðst inn í Tbilisi, höfuðborg Georgíu.
- Bygging hófst á dómkirkjunni í Mílanó.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 24. febrúar - Karl 3., konungur Napólí (f. 1345).
- 9. júlí - Leópold 3., hertogi af Austurríki (f. 1351).
- 20. ágúst - Bo Jonsson Grip, konunglegur marskálkur Svíþjóðar.
- 31. desember - Jóhanna af Bæjaralandi, drottning Bæheims (f. um 1362).
- Euphemia de Ross, seinni kona Róberts 2. Skotakonungs.