1384
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1384 (MCCCLXXXIV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Sveinbjörn Sveinsson varð ábóti í Þingeyraklaustri.
- Sumarið var hart og spilltust mjög akrar og hey.
- Í Setbergsannál segir: „Útkoma eins ókunnugs herramanns til Íslands, er villtist í hafi og ætlað hafði til Ægypten. Á hans skipi var sagt að verið hefði 900 manns og allt stórvaxið fólk ...“
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Gunnsteinn ábóti í Þingeyraklaustri.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 30. janúar - Margrét 3. varð hertogaynjan af Flæmingjalandi og saman með manni sínum Filippusi djarfa, hertoga Búrgund, réðu þau yfir báðum landsvæðum.
- 11. febrúar - Kaupmaðurinn John Constantine í London hvatti búðareigendur til að loka búðum sínum til að mótmæla handtöku fyrrum borgarstóra borgarinnar. Constantine var handtekinn og afhöfðaður. Höfuð hans var haft til sýnis við Newgate-borgarhliðið.
- Maí-september - Umsátur hers Kastilíumanna um Lissabon.
- 5. ágúst - Jarðskjálfti varð á Lesbos. Genúskur stjóri eyjunnar, Francesco I Gattilusio, lést ásamt tveimur sonum sínum. Yngsti sonur hans, Jacopo Gattiliuso, lifði af og tók við völdum.
- 16. október - Heiðveig krýnd drottning Póllands.
- Nóvember - Róbert, krónprins Skotlands, gerði hallarbyltingu og tók völdin af föður sínum, Róbert 2.
- Timur lagði undir sig svæði í vestur-Persíu.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 11. ágúst - Jólanda Aragóníudrottning (d. 1442).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 10. september - Jóhanna af Dreux, hertogaynja af Bretagne (f. 1319).
- 20. september - Loðvík 1., hertogi af Anjou (f. 1339).