Fara í innihald

Písa

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útsýni yfir Písa úr Skakka turninum.

Písa er borg í Toskanahéraði á Ítalíu og er höfuðstaður Písa-sýslu. Borgin stendur við mynni árinnar Arno þar sem hún rennur í Miðjarðarhafið. Íbúar borgarinnar eru um 88.627 (31. desember 2013). Písa er þekktust fyrir Skakka turninn, klukkuturn dómkirkju borgarinnar. Þar er einnig Háskólinn í Písa, en saga hans nær aftur á 12. öld.

Písa var áður mikilvæg hafnarborg og helsta verslunarhöfn Toskanahéraðs en á 15. og 16. öld hafði árframburður fyllt höfnina svo mikið að hafskip gátu ekki lagst þar að lengur og Livorno tók við hlutverki Písa sem hafnarborgar. Þetta hafði mikil áhrif á framþróun og íbúatala Písa hefur staðið meira og minna í stað frá því á miðöldum.

Ekkert er vitað með vissu um uppruna heitisins Písa, helstu tilgátur eru að heitið merki árós enda borgin við ósa Arno-árinnar, og hinsvegar að heitið sé leitt af gríska heitinu πῖσος pîsos, sem merkir «svæði með áveituvatni».[heimild vantar]