Frísland
Frísland
| |
|---|---|
Staðsetning í Hollandi | |
| Hnit: 53°12′5″N 5°48′0″A / 53.20139°N 5.80000°A | |
| Land | |
| Höfuðstaður (og stærsta borg) | Leeuwarden |
| Flatarmál | |
| • Samtals | 5.753 km2 |
| • Land | 3.340 km2 |
| • Vatn | 2.413 km2 |
| Mannfjöldi (31. desember 2025)[2] | |
| • Samtals | 665.208 |
| • Þéttleiki | 120/km2 |
| Tímabelti | UTC+01:00 (CET) |
| • Sumartími | UTC+02:00 (CEST) |
| ISO 3166 kóði | NL-FR |
| Vefsíða | www |
Frísland (frísneska: Fryslân, hollenska: Friesland) er stærsta fylki Hollands, 5.753 km2. Fylkið er að hluta til á fastalandinu en því tilheyra einnig nokkrar eyjar í Vaðhafinu. Frísland er eina fylki Hollands þar sem frísneska er töluð sem opinbert mál, auk hollensku.
Lega og lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Frísland liggur við Vaðhafið og við IJsselmeer nyrst í Hollandi. Önnur héruð sem að Fríslandi liggja eru Groningen og Drenthe í austri, Overijssel og Flevoland í suðri. Frá Fríslandi er hægt að aka eftir sjóvarnargarði yfir Ijsselmeer til fylkisins Norður-Hollands. Til Fríslands heyra vestur-frísnesku eyjarnar Vlieland, Terschelling, Ameland og Schiermonnikoog. Íbúar Fríslands eru 665 þúsund (2025).[2] Höfuðborgin er Leeuwarden. Stór hluti Fríslands er undir sjávarmáli, sérstaklega í suðri og vestri. Hæsti punktur fylkisins er 45 metra yfir sjávarmáli og er á eyjunni Vlieland. Á fastalandinu er hæsti punkturinn 12 metra yfir sjávarmáli.
Fáni og skjaldarmerki
[breyta | breyta frumkóða]Fáni Fríslands er með fjórum bláum og þremur hvítum skáröndum. Í hvítu röndunum eru samtals sjö vatnaliljublöð. Blöðin tákna hinar sjö fornu sýslur sem mynduðu fylkið á miðöldum. Elstu heimildir um þær eru frá 11. öld. Skjaldarmerkið er miklu yngra, en það var formlega tekið upp 9. júlí 1957. Það skartar tveimur gylltum ljónum á bláum fleti. Ljónin eru merki greifanna af Hollandi annars vegar og biskupanna frá Utrecht hins vegar, en þeir áttu ítök í fylkinu á miðöldum. Ytra skrautið, ljónaberarnir og kórónan, eru nýrri tíma viðbætur.
Orðsifjar
[breyta | breyta frumkóða]Frísland heitir eftir germanska þjóðflokkinum Frísum sem bjuggu á svæðinu forðum (og búa enn). Heitið var áður fyrr notað yfir miklu stærra svæði, en forðum var talað um Frísland frá Norður-Hollandi allt til Suður-Jótlands. Með tímanum þrengdist það landsvæði sem heitið var notað um. Nú eru Austur-Frísland og Norður-Frísland innan marka Þýskalands. Þjóðverjar kalla hollenska fylkið enn Vestur-Frísland, en það veldur oft misskilningi, því Hollendingar sjálfir kalla fylkið Norður-Holland gjarnan Vestur Frísland, þar sem það var vestasti hluti hins gamla Fríslands. Á frísnesku heitir fylkið opinberlega Fryslân. Frísar kalla fylkið oft It Heitelân, sem merkir föðurlandið.
Söguágrip
[breyta | breyta frumkóða]Frísland var áður fyrr miklu stærra svæði og var hluti af ríki Franka. Á miðöldum lagði hið heilaga rómverska ríki austurhluta landsins undir sig, en greifarnir af Hollandi innlimuðu alltaf stærri og stærri hluta þess í vestri. Eftir stutt sjálfstæðistímabil á 15. öld gengu Frísar í raðir Hollendinga í uppreisn þeirra gegn Spánverjum. Frísland varð eftir það að nokkuð sjálfstæðri einingu í hollenska ríkinu. Til dæmis kom fylkið sér upp eigin herflota, enda lá landið vel að sjó. Frakkar innlimuðu Frísland á sínum tíma í Batavíska lýðveldið, en síðan 1815 er Frísland fylki í Hollandi.
Borgir
[breyta | breyta frumkóða]Stærstu borgir í Fríslandi:
| Röð | Borg | Íbúar | Ath. |
|---|---|---|---|
| 1 | Leeuwarden | 96 þúsund | Höfuðborg fylkisins |
| 2 | Drachten | 44 þúsund | |
| 3 | Heerenveen | 43 þúsund |
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Statistieken provincie Fryslân“. AlleCijfers.nl (hollenska). Sótt 29. september 2026.
- 1 2 „Population; key figures“. CBS StatLine (enska). Statistics Netherlands. Sótt 29. september 2026.