Fara í innihald

Rúðuborg

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Göngu-Hrólfur (normannska: Rou) stofnandi Normandí.
Miðbær Rúðuborgar

Rúðuborg eða Rúða (franska: Rouen) er höfuðborg Normandí í Frakklandi. Borgin var voldug á miðöldum og þar brenndi Geoffroy Thérage Jóhönnu af Örk á báli árið 1431. Rúðujarlar eru kenndir við borgina. Í borginni búa um 500 þúsund manns. Stytta er þar af Göngu-Hrólfi sem stofnaði Normandí

Sjálft heiti borgarinnar sem í elstu dæmum er -Ratumacos stemmir frá Göllunum sem þar höfðust við fyrir innrás Rómverja. Síðari liðurinn (magos) merkir völlur eða flatur skiki, og síðar markaður. Fyrri liðurinn gæti þýtt "hjól". [1]. Gæti verið að þeir hafi þar keppt í vagnakapphlaupi sem þeir voru þekktir fyrir.

  Þessi landafræðigrein sem tengist Frakklandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  1. ↑ Xavier Delamarre, Dictionnaire de la langue gauloise, Paris, éditions Errance, 2003, p. 185.