Helge Ingstad

Helge Marcus Ingstad (fæddur 30. desember 1899 í Meråker, látinn 29. mars 2001) var norskur lögfræðingur, rithöfundur og sjálflærður fornleifafræðingur. Hann er meðal annars þekktur fyrir að hafa, ásamt konu sinni, Anne Stine Ingstad, fundið fornar norrænar búðir við L'Anse aux Meadows í Kanada, sem eru heimildir um heimsóknir og mögulega búsetu norrænna manna í Norður-Ameríku um ár 1000.
Eftir að hafa útskrifast með embættisprófi (cand. jur.) í lögfræði árið 1922 starfaði hann fyrst sem aðstoðarmaður sýslumanns og síðar sem lögmaður í Levanger.[1] Hann fluttist til Kanada 1926 til að starfa sem loðdýraveiðimaður í Norðvesturhéruðunum og dvaldi þar í fjögur ár. Við heimkomuna varð hann fljótt þekktur fyrir fyrstu bók sína, Pelsjegerliv blant Nord-Kanadas indianere (sem kom út 1931).
Ingstad var settur sem sýslumaður 1932 í austurhluta Grænlands sem Norðmenn gerðu tilkall til og hernámu og kölluðu Land Eiríks rauða. Hann var þar til ársins 1933, þegar Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði að Danmörk hefði rétt til alls Grænlands. Dvöl hans á Grænlandi leiddi til bókarinnar Øst for den store bre, sem kom út árið 1935.
Ingstad varð sýslumaður á Svalbarða, þar sem hann starfaði frá 1933-35. Um það skrifaði hann bókina Landet med de kalde kyster, sem var gefið út 1948.[2] Ingstad var í leiðangri til Apache-þjóðarinnar í Nýju Mexíkó, frá 1936-1938 í leit að týnda ættbálki Geronimo og skrifaði Apache-indianerne - jakten på den tapte stamme um þá 1939. Hann fór í svipaðan leiðangur 1949-1950 til Nunamiut-inúíta í norðurhluta Alaska og skrifaði Nunamiut - blant Alaskas innlandseskimoer um þá 1951.
Anne Stine og Helge Ingstad fundu árið 1960 tóftir sem gátu verið leifar af fornri norrænni byggð á Nýfundnalandi. Sjö sumur á árunum 1961 til 1968 hafði Anne Stine Ingstad forystu fyrir teymi þátttakenda frá Svíþjóð, Íslandi, Kanada, Bandaríkjunum og Noregi við uppgröft og rannsóknir á L'Anse aux Meadows. Niðurstaða þessara rannsókna sýndi fram á norrænir menn hefðu komið til Ameríku 500 árum fyrir Kristófer Kólumbus. [3]
Ritverk
[breyta | breyta frumkóða]- Pelsjegerliv – blant Nord-Canadas indianere (1931) Gyldendal ISBN: 9788205377547
- Øst for den store bre (1935), Gyldendal, ISBN: 9788205068209
- Apache-indianerne. Jakten på den tapte stamme (1939), Gyldenda. ISBN: 8276433693
- Klondyke Bill (1941) , Gyldendal.
- Siste båt (leikrit, 1946), Gyldendal
- Landet med de kalde kyster (1948), Gyldendal. ISBN: 9788205297357
- Nunamiut - blant Alaskas innlands-eskimoer (1951) Gyldendal Norsk Forlag, ISBN: 9788276434194
- Landet under Leidarstjernen (1959), Gyldendal Norsk Forlag
- Vesterveg til Vinland (1965), Gyldendal. ISBN: 8205303592
- The Norse Discovery of America (1985), Anne Stine Ingstad og Helge Ingstad, Norwegian University Press. ISBN: 8200070387
- Nunamiut Stories (1987), North Slope Borough Commission on Iñupiat History, Language and Culture. ISBN: 088150761X
- The Viking Discovery of America (1991), Breakwater Books Ltd., ISBN: 1550811584
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Frode Skarstein (2010) Helge Ingstad : En biografi. Spartacus. ISBN: 9788243005044
- Benedicte Ingstad (2009): Eventyret – en biografi om Helge Ingstad. Oslo: Gyldendal. ISBN: 978-82-05-39097-3
- Benedicte Ingstad (2010): Oppdagelsen – en biografi om Anne Stine og Helge Ingstad. Oslo: Gyldendal. ISBN: 978-82-05-39554-1
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Skarstein, Frode: Helge Ingstad : En biografi, Oslo: Spartacus, 2010, ISBN 9788243005044
- ↑ [ https://web.archive.org/web/20170118033550/http://www.polarhistorie.no/personer/Ingstad,%20Helge "Helge Ingstad".] Norsk Polarhistorie.
- ↑ Wallace, Birgitta (March 2, 2018).[ https://thecanadianencyclopedia.ca/en/article/lanse-aux-meadows "L'Anse aux Meadows".] Canadian Encyclopedia. Historica Canada.