Fara í innihald

Galdrastafur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Notkun í nútímanum: Draumstafir á stuttermabol.

Galdrastafir eru tákn sem eru notuð í íslenskum galdri, yfirleitt í þeim tilgangi til að ná stjórn á náttúruöflunum eða reyna að stýra framvindu mála.

Íslenskir galdrastafir eiga sér mismunandi rætur. Sumir eru greinilega runnir frá rúnaletri og eru þá myndaðir úr samsettum rúnum, en aðrir eru innfluttir. Ber þar mest á ýmiskonar innsiglum sem finna má í dulspeki miðalda. Þeir eru varðveittir í margvíslegum handritum frá 16. öld til 20. aldar.

Sumir galdrastafir bera sérstök nöfn, en aðrir ekki. Þeim fylgja jafnan leiðbeiningar um til hvers þeir eru ætlaðir og hvað þarf að gera til að þeir virki rétt. Því máttugri sem galdurinn er, því erfiðara er yfirleitt að framkvæma hann. Tilgangurinn með notkun stafanna er margvíslegur; sumir eru ætlaðir til verndar eða lækninga, en aðrir til að gera öðrum illt. Fjölmargir íslenskir galdrastafir eru til að verjast þjófnaði eða finna þjóf og annar stór hluti eru ástargaldrar, flestir til að verða sér úti um konu.

Galdrahandritin eru alls ekki alltaf samhljóða um heiti og tilgang einstakra stafa, en sjálf táknin má finna nákvæmlega eins í eldri og yngri skræðum. Í galdramálum sem upp komu á Íslandi á 17. öld er yfirleitt um að ræða stafi eða blöð sem ætluð eru til að létta sér lífsbaráttuna, en lítið bar á svartagaldri eða meingaldri.

Einn elsti og þekktasti galdrastafurinn er verndarstafurinn Ægishjálmur sem er í sýslumerki Strandasýslu. Hann er til í ýmsum myndum í fjölmörgum handritum.

Margir galdrastafir eru vinsælir sem húðflúr. Björk Guðmundsdóttir lét þannig húðflúra galdrastafinn Vegvísi á vinstri handlegg.

Um galdrastafi er til sú hjátrú að ekki megi draga línurnar í átt að sér því þá virkar galdurinn gegn manni.

Fleiri galdrastafir

[breyta | breyta frumkóða]
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.