Fara í innihald

Debenhams

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Debenhams var bresk verslunarkeðja með útibú í mörgum löndum, þar á meðal á Íslandi, í Smáralind í Kópavogi.[1] Fyrsta verslunin var stofnuð í Lundúnum árið 1778 og keðjan fjölgaði síðan í allt að 178 verslanir; mestmegnis í Bretlandi, Danmörku og Írlandi. Hún átti einnig dönsku verslunarkeðjuna Magasin du Nord og á síðustu árunum voru höfuðstöðvar hennar staðsettar í flaggskipversluninni á Oxford Street í Lundúnum. Hún seldi fatnað, snyrtivörur, heimilisvörur og húsgögn.[2]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Arnarsson, Sveinn (30 júní 2016). „Debenhams lokað í Smáralind á næsta ári - Vísir“. visir.is. Sótt 16 febrúar 2025.
  2. ↑ „Debenhams verslanir heyra sögunni til“. www.vb.is. Afrit af upprunalegu geymt þann 16 apríl 2025. Sótt 16 febrúar 2025.
  Þessi fyrirtækjagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.