Forsíða
60.564 greinar á íslensku.
Fallbyssa
Fallbyssa er mjög stór byssa, oftast á vagni, fæti eða stalli, sem í eru notuð þung skot. Fallbyssur voru fyrst fundnar upp í Kína um 1150 e.Kr. Svartpúður var notað sem drifefni. Þegar svartpúður brann myndast gas og það þeytti skotinu úr fallbyssuhlaupinu. Fallbyssur bárust til Evrópu á 14. öld. Útbreiðsla þeirra olli aukinni eftirspurn eftir brennisteini og saltpétri sem notuð voru til að framleiða svartpúður. Ísland flutti út brennistein til púðurgerðar frá 14. öld og fram á 19. öld. Fallbyssuhlaup voru framleidd úr bronsi og látúni fram á seinni hluta 19. aldar þegar byrjað var að framleiða fallbyssuhlaup úr stáli. Á 20. öld urðu fallbyssur langdrægari og öflugri. Nýjar tegundir fallbyssna eins og skriðdrekavarnarbyssur, skriðdrekabyssur, loftvarnabyssur og vélfallbyssur komu einnig fram á 20. öld þegar hertækni fleygði fram. Eftir seinni heimsstyrjöldina tóku eldflaugar við hlutverki fallbyssna sem meginvopn herskipa og voru hentugri til að granda skriðdrekum. Loftvarnabyssur eru þó enn notaðar í hernaði og stórskotalið er enn eitt af mikilvægustu vopnun nútímavígvallarins
Vissir þú...

- … að um helmingur allra íbúa Paragvæ lést í Paragvæstríðinu 1864–1870?
- … að barnastjarnan Shirley Temple varð á fullorðinsárum sínum sendiherra Bandaríkjanna í Gana og Tékkóslóvakíu?
- … að samkvæmt hefðum ástralskra frumbyggja áttu eingöngu karlmenn að leika á hljóðfærið didgeridoo (sjá mynd)?
- … að metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoninu var árið 2014, þegar 15.552 þáttakendur voru skráðir?
- … að titill bókarinnar Lord of the Flies er vísun í viðurnefni djöfulsins Belsebúbs?
Fréttir

- 8. október: Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson (sjá mynd) hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.
- 27. september: Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, segir af sér.
Yfirstandandi: Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Íransstríðið
Nýleg andlát: Dennis Hastert (3. október) • Margaret Hamilton (30. september)
19. október
- 2012 - Fjölbýlishúsið Blok P í Nuuk var rifið.
- 2013 - Fiðla Wallace Hartley sem fundist hafði í flaki Titanic var seld á 900.000 sterlingspund.
- 2015 - Frjálslyndir undir forystu Justin Trudeau sigruðu þingkosningar í Kanada.
- 2018 - Lestarslysið í Amritsar: 59 létust þegar lest ók í gegnum mannþröng á hátíð hindúa í Púnjab á Indlandi.
- 2018 - Ómannaða könnunarfarið BepiColombo var sent í átt að Merkúr.
- 2019 - Sebastián Piñera, forseti Síle, lýsti yfir neyðarástandi vegna fjöldamótmæla Sílemanna gegn verðhækkun á lestarmiðum.
- 2020 – Luis Arce var kjörinn forseti Bólivíu.
- 2024 - Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum varð Evrópumeistari.
- 2025 - Þing og forsetakosningar voru haldnar í Bólivíu. Mið-hægri maðurinn Rodrigo Paz Pereira vann sigur í síðari umferð bólivísku forsetakosninganna. Sósíalíski flokkurinn MAP-IPSP sem hafði stýrt landinu í 20 ár missti öll þingsæti.
- 2025 - Frönsku krúnudjásnunum var stolið úr Louvre-safninu í París.
Systurverkefni
|
|